Efnisyfirlit
Flest sveitarfélög bjóða upp á félagsstarf fyrir hina eldri. Víða um land starfa auk þess félög eldri borgara sem bjóða upp á margs konar dægradvöl, samveru og tómstundastarf, og eru opin öllum 60 ára og eldri. Félög eldri borgara á Íslandi eru 56. Þau eiga öll aðild að Landssambandi eldri borgara (LEB). Formaður LEB er Helgi Pétursson.
Reykjavíkurborg
Í Reykjavík heldur Velferðarsvið utan um starf 17 félagsmiðstöðva víðs vegar um borgina. Markmið félagsstarfsins er að fyrirbyggja og draga úr félagslegri einangrun með því að bjóða upp á opið félags- og tómstundastarf auk fjölda námskeiða. Félagsstarfið er vettvangur samfunda, mannlegra samskipta og skapandi athafna. Leitast er við að virkja frumkvæði og hæfileika hvers og eins. Hádegisverður er í boði á öllum þessum stöðvum og kaffiveitingar. Framboð getur verið breytilegt milli stöðva og fólk getur farið á milli eftir áhuga og dagskrá hverju sinni.
Ekki þarf að sækja sérstaklega um þátttöku í félagsstarfi í borginni, aðeins að mæta á staðinn. Allir eru velkomnir.
Kostnaður er breytilegur en þó alltaf eins lítill og kostur er. Ekkert kostar að koma í heimsókn og kynna sér starfsemi félagsmiðstöðvanna en starfið getur verið mjög breytilegt milli stöðva.
Auk starfsins í félagsmiðstöðvunum rekur Reykjavíkurborg dagdvöl fyrir aldraða á tveimur stöðum, í Þorraseli Vestugötu 7, og á Vitatorgi Lindargötu 79. Um þá þjónustu þarf að sækja sérstaklega. Sjá nánar hér.
Félagsstarf sveitarfélaga á landsvísu
Dæmi um starf sem í boði er í félagsmiðstöðvum og þjónustukjörnum sveitarfélaganna víða um land:
- listsköpun og hannyrðir,
- leikhúsferðir og ferðalög,
- spilamennska og kórstarf,
- námskeið og skemmtun,
- leikfimi,
- aðstoð við banka- og verslunarferðir
Félagsstarf eldri borgara hjá nokkrum sveitarfélögum:
- Akranes
- Akureyri
- Blönduósbær
- Borgarbyggð
- Fjarðabyggð
- Garðabær
- Hafnarfjörður
- Ísafjarðarbær
- Kópavogur
- Mosfellsbær
- Reykjavík
- Skagafjörður
Yfirlit yfir sveitarfélög landsins má finna hér og á vefsíðum þeirra upplýsingar um félagsstarf.
Félög eldri borgara
Vefsíður nokkurra félaga eldri borgara:
- Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni
- Félag eldri borgara í Kópavogi
- Félag eldri borgara Garðabæ
- Félag eldri borgara í Hafnarfirði
- Félag eldri borgara á Seltjarnarnesi
- Félag aldraðra í Mosfellsbæ og nágrenni
- Félag eldri borgara á Suðurnesjum
- Félag eldri borgara á Akranesi
- Félagsstarf eldri borgara í Ísafjarðarbæ
- Félag eldri borgara á Akureyri
- Félag eldri borgara á Fljótsdalshéraði
- Félög eldri borgara í Árborg
- Félag eldri borgara í Hveragerði
- Félag eldri borgara í Rangárvallasýslu
Hér má finna listayfir öll eldri borgara félögin sem eiga aðild að Landssambandi eldri borgara LEB.
Á vegum Rauða krossins er boðið upp á samveru og félagsskap með svonefndum heimsóknavinum. Þetta eru sjálfboðaliðar, sem heimsækja fólk á heimili þess, á stofnanir, sambýli og dvalar- og hjúkrunarheimili. Misjafnt er hvað felst í heimsókn en það getur t.d. verið spjall, gönguferð, ökuferð, upplestur, aðstoð við handavinnu o.s.frv. Upplýsingar um heimsóknavini má finna hér.
Á vegum Þjóðkirkjunnar er víða boðið upp á samveru og dægradvöl fyrir eldri borgara. Hver kirkja er með vefsíðu þar sem finna má upplýsingar um starfið, þar á meðal það sem snýr að eldri borgurum. Hér er yfirlit yfir vefsvæði hverrar sóknar, fengið af vef Þjóðkirkjunnar. Þá er í Reykjavík starfandi Eldriborgararáð Reykjavíkurprófastsdæmis, ráðið er með Facebook-síðu.